Pilot þáttur - Kolvetnahræðsla & íþróttafólk
Undanfarin ár hefur borið mikið á kolvetnaumræðu í tengslum við íþróttir og þjálfun. Í okkar starfi sem íþróttanæringarfræðingar höfum við nefnilega orðið vör við hvað þessi umræða hefur haft mikil áhrif á það íþróttafólk sem kemur til okkar og skapað mikla hræðslu í tengslum við kolvetnarík matvæli.
Ég nýtti því þennan þátt í að fara aðeins yfir hlutverk og virkni kolvetna í líkamanum – þá sérstaklega í tengslum við frammistöðu í íþróttum ásamt því að snerta aðeins á mýtunum sem hafa verið á lofti í tengslum við þau sem vonandi hjálpar þér að fá betri yfirsýn og grisja réttar upplýsingar frá röngum.
Fleiri þættir af Íþróttanæring með Nutreleat
- 25. Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- & efnaskiptalæknir: Beinmeiðsli, næring og hormón28. september 2026
- 24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk14. september 2026
- 23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi31. ágúst 2026
- 22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur17. ágúst 2026
- 21. Þegar aginn verður að þráhyggju: Átraskanir í íþróttum3. ágúst 2026
- 20. Kolvetnaneysla & beinheilsa, rannsóknar deep-dive20. júlí 2026
