4. Guðlaug Ingibjörg
Í nýjasta þætti af Lífið á meðan fæ ég til mín Guðlaugu.Á einni nóttu breyttist allt. Barn verður langveikt, foreldrar fara út af vinnumarkaði og lífið sem þau þekktu hverfur.Í þættinum ræðum við hvernig það er að standa í svona aðstæðum, þegar þú veist ekkert hvert lífið stefnir, þegar þú þarft að verða sérfræðingur barnsins þíns og halda áfram á sama tíma.Guðlaug hefur ótrúlega nálgun á lífið, mikla kómík og finnur þakklæti á stöðum þar sem maður myndi kannski ekki búast við því.Við ræðum líka:– álagið sem fylgir því að verða allt í einu “hjúkrunarforeldri”– hvað situr eftir þegar fólk er ekki nærgætið– hvernig tengsl og félagslíf breytast– og af hverju setningin „lífið er núna“ fær allt aðra merkingu
