#8 Lanis skimunarlistinn - Jóhanna Thelma Einarsdóttir og Þóra Másdóttir
Ég fékk til mín dr. Jóhönnu Thelmu Einarsdóttur prófessor á Menntavísindasviði og Heilbrigðisvísindasviði HÍ og dr. Þóru Másdóttur dósent á Heilbrigðisvísindasviði HÍ til þess að ræða Lanis skimunarlistann.
Tjáskipti teljast til grundvallarmannréttinda. Erfiðleikar í tjáskiptum leikskólabarna geta haft neikvæð áhrif á síðari lestrartileinkun þeirra, námsframvindu, félagsfærni, líðan og tilfinningaþroska. Mikilvægt er að bera tímanlega kennsl á leikskólabörn sem eiga í erfiðleikum með að tjá sig til þess að unnt sé að veita þeim þann stuðning sem þau þarfnast og draga um leið úr þeim neikvæðu áhrifum sem slíkir erfiðleikar geta haft í för með sér. Eins og sakir standa eru ekki til áreiðanleg og réttmæt skimunartæki sem foreldrar eða leikskólakennarar geta nýtt til kanna málfærni barna á aldrinum þriggja ára, hvort sem um er að ræða börn sem eiga íslensku að móðurmáli eða þau sem hafa annað móðurmál en íslensku. LANIS skimunarlistinn fyrir frávikum í tal og málþroska hefur verið í þróun um nokkurt skeið og hafa forprófanir gefið til kynna að listinn er áreiðanlegur og réttmætur.
Ítarefni: www.talmal.hi.isEwa Czaplewska: https://fil.ug.edu.pl/wydzial/instytuty/instytut-logopedii/pracownicy-instytutu/dr-hab-ewa-czaplewska-prof-ug
MS ritgerðir um LANIS:
Karen Inga: https://skemman.is/bitstream/1946/41652/1/LANIS%20framb.%20-%20KIB.pdf
Rannveig: https://skemman.is/bitstream/1946/41609/1/Rannveig_Gestsd%c3%b3ttir_LANIS_skimunarlisti.pdf
Lilja: https://skemman.is/bitstream/1946/47117/3/Lilja%20Helgado%cc%81ttir%20-%20LANIS%20skimunarlisti.pdf
Úr hlaðvarpinu
Námsvarpið - Mál, læsi og líðanRannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan - Berglind Axelsdóttir
Fleiri þættir af Námsvarpið - Mál, læsi og líðan
- PISA og QUINT tengt saman24. september 2026
- #24 Námsorðaforði og notkun gervigreindar - Sigurður Fjalar Jónsson og Hjörvar Ingi Haraldsson16. júní 2026
- #23 Kennsluleiðbeiningar og nemendahefti með íslenskum námsorðaforða - Auður Pálsdóttir og Ragnar F. Ólafsson29. maí 2026
- #22 Tækifæri til náms og líðan - Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir18. maí 2026
- #21 Að lesa sér til gagns - Sigríður Ólafsdóttir25. mars 2026
- #20 Hvað eru gagnreyndar aðferðir og af hverju/hvernig skipta þær máli - Auður Soffíu Björgvinsdóttir og Margrét Sigmarsdóttir5. mars 2026
