Námsvarpið - Mál, læsi og líðan

Rannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan - Berglind Axelsdóttir

GSuite for Education

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan er hlaðvarp sem verkefnastjóri læsis og lestrarkennslu hjá Menntavísinda og Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands stýrir í samstarfi við Rannsókna- og fræðslustofu um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna. Í hlaðvarpinu fær verkefnastjórinn, Berglind Axelsdóttir til sín alls kyns fræðafólk og sérfræðinga og ræðir við það um efni sem tengist máli, læsi og líðan barna og ungmenna. Upptökustjóri er Sveinn Bjarki Tómasson verkefnisstjóri nýsköpunar- og tæknimenntunar.

PISA og QUINT tengt saman

Námsvarpið fékk til sín Dr. Önnu Kristínu Sigurðardóttur til þess að ræða nýjustu niðurstöður PISA og tengja þær saman við niðurstöður QUINT rannsóknarinnar. Ítarefni: PISA 2025, Helstu niðurstöður á Íslandi: https://menntavisindastofnun.hi.is/sites/menntavisindastofnun.hi.is/files/2026-09/PISA_2025.pdf Anna Kristín Sigurðardóttir, Hermína Gunnþórsdóttir og Rúnar Sigþórsson (ritstj.). (2025). Gæði kennslu. Námstækifæri fyrir alla nemendur. Háskólaútgáfan. https://haskolautgafan.is/products/gaedi-kennslu-namstaekifaeri-fyrir-alla-nemendur?taxon_id=4  Klette, K., Magnusson, C.G. og Sigurjónsson, J.Ö. (ritstj.). (2026). Investigating teaching quality through video capture: Equity and quality in Nordic classrooms. Springer. https://link.springer.com/book/10.1007/978-3-032-06893-4

#24 Námsorðaforði og notkun gervigreindar - Sigurður Fjalar Jónsson og Hjörvar Ingi Haraldsson

Námsvarpið fékk til sín félagana (Sigurð) Fjalar Jónsson og Hjörvar Inga Haraldsson kennara í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Við ræddum um kennslu þeirra í orðaforða þar sem þeir nýta gervigreindina til þess að aðstoða sig við að vinna á markvissari hátt. Þá ræddum við um skort á námsorðaforða í kennslustofunni og hvernig hann hefur áhrif á lesskilning og námsárangur og hvernig gervigreind getur hjálpað kennurum við að kennurum að vinna með námsorðaforða án þess að auka vinnuálagið. Að lokum ræddum við einnig um NotebookLM og sambærileg verkfæri sem þeir nýta í sinni kennslu.

#23 Kennsluleiðbeiningar og nemendahefti með íslenskum námsorðaforða - Auður Pálsdóttir og Ragnar F. Ólafsson

Við fengum til okkar Dr. Auði Pálsdóttur og Ragnar Friðrik Ólafsson doktorsnema sem hafa ásamt Dr. Sigríði Ólafsdóttur unnið að rannsóknarverkefni sem ber yfirheitið Íslenskur námsorðaforði. Fyrir nokkru síðan hélt íslensk málnefnd málþing um námsorðaforða og læsi þar sem frummælendur voru Dr. Ármann Jakobsson sem fjallaði um hrakandi læsi nemenda á íslensku, Dr. Elín Þöll Þórðardóttir sem fjallaði um stöðu barna með íslensku sem annað mál, og Dr. Auður Pálsdóttir (annar viðmælenda minna) sem fjallaði um gagnlegan stuðning við kennara í vinnu með orðaforða og Dr. Sigríður Ólafsdóttir um hvers konar verkfæri virka og horfði svo til framtíðar.

#22 Tækifæri til náms og líðan - Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir

Námsvarpið fékk til sín Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur til þess að ræða tækifæri til náms og líðan. Jóhanna Birna segir frá skólagöngu sinni og þeim áskorunum sem hún stóð frammi fyrir. Þrátt fyrir það hefur henni tekist að ná ótrúlegum árangri í námi og starfi. Ítarefni https://www.harts.is/ https://www.johannabirnabjartmars.com/ https://noredreviews.org/index.php/NJSRE/article/view/6736/11285

#21 Að lesa sér til gagns - Sigríður Ólafsdóttir

Við fengum Dr. Sigríði Ólafsdóttur til þess að koma og ræða um það hvað það þýðir að lesa sér til gagns. Hvað þurfi til þess að skilja lesinn texta og af hverju virðist lesskilningur eflast svo lítið á grunnskólaárunum. Hverju er um að kenna. Er munur á lesskilningi eftir því hvort textinn er á pappír, í síma eða á vef? Af hverju skiptir djúpur lesskilningur svona miklu máli fyrir nám og líf almennt og hvaða hlutverki gegna orðaforði og bakgrunnsþekking í lesskilningi. Hver sé algengasti misskilningurinn í umræðu um lestrarfærni og lesskilning og ef hún mætti velja þrjár breytingar sem myndu bæta lesskilning barna og ungmenna mest, hverjar væru þær. Ítarefni https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88400  https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88413 https://www.visindavefur.is/svar.php?id=88398

#20 Hvað eru gagnreyndar aðferðir og af hverju/hvernig skipta þær máli - Auður Soffíu Björgvinsdóttir og Margrét Sigmarsdóttir

Undanfarið hefur mikið verið rætt í fjölmiðlum og víðar um líðan og hegðun barna og einnig um lestrarfærni eða skort á henni öllu heldur. Hvað eru við sem samfélag að gera í þessum efnum? Það liggur ekki síður fyrir að spyrja: Hvað erum við sem samfélag að gera rangt? Stundum er sagt að ef við viljum skilja stöðuna, þá er besta leiðin að reyna að breyta henni. Þá er bara spurning hvernig og við gerum til þess.  Í umræðunni kemur fyrir hugtakið gagnreynt eða raunprófað, gagnreyndar aðferðir. En, það virðist vera mismunandi skilningur á hvað gagnreyndar aðferðir eru. Meðal annars hafa verið nýlega umræður á alþingi um barnavernd, sem benda til þess að það gæti verið gagnlegt að skýra hvað þetta hugtak, gagnreynt, merkir. Það virðist vera óljóst þegar fjallað er um aðferðir, hvort eitthvað sé gagnreynt eða ekki.  Til að ræða þetta fékk Námsvarpið til sín Margréti Sigmarsdóttur og Auði Soffíu Björgvinsdóttur sem fjallað hafa um gagnreyndar aðferðir, en ekki frá sama sjónarhóli.  Margrét Sigmarsdóttir er prófessor í sálfræði og rannsóknarleiðtogi menntavísindasviðs HÍ, hún er klínískur sálfræðingur og hefur mikla reynslu og þekkingu á rannsóknum og innleiðingu gagnreyndra aðferða.   Auður Soffíu Björgvinsdóttir er grunnskólakennari, læsisfræðingur og doktor í fræðunum.  Í doktorsnáminu kynntist hún og rannsakaði gagnreynda kennsluaðferð í lestri.  Ítarefni: Education Endowment Foundation. Bresk síða með yfirliti yfir  aðferðir sem er mælt með og hvaða rannsóknum það byggir á https://educationendowmentfoundation.org.uk/ What Works Clearinghouse. Bandarísk síða með yfirliti yfir aðferðir sem er mælt með og hvaða rannsóknum það byggir á https://ies.ed.gov/ncee/wwc Hér er bein slóð á PALS hlutann https://ies.ed.gov/ncee/wwc/Docs/InterventionReports/wwc_pals_060512.pdf National Center on Improving Literacy. Bandarísk síða um rannsóknir tengdar læsi og lestrarkennslu https://improvingliteracy.org/ Eyberg, S. M., Nelson, M. M., & Boggs, S. R. (2008). Evidence-Based Psychosocial Treatments for Children and Adolescents With Disruptive Behavior. Journal of Clinical Child & Adolescent Psychology, 37(1), 215–237. https://doi.org/10.1080/15374410701820117

#19 Máltaka, málþroski og málfærni - Iris Edda Nowenstein

Námsvarpið fékk til sín Dr. Irisi Eddu Nowenstein lektor á Hugvísindasviði og talmeinafræðing á Landspítalnum. Umræðuefnið var máltaka, málþroski og málfærni í samhengi við aukna ensku í málumhverfi íslenskumælandi barna og fjölgun barna með íslensku sem annað mál. Ítarefni: https://pubs.asha.org/doi/10.1044/2023_JSLHR-23-00117 https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/00313831.2024.2322958?casa_token=G2jHhEn463kAAAAA%3AOJlOnXofEEyA9-5vEjJAo5qyui5Hb8iW7eGmpg7ILSnslVYdQPvys__zxP4qoraRoSsme6qQ0u54fA https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/00313831.2024.2322958?casa_token=G2jHhEn463kAAAAA%3AOJlOnXofEEyA9-5vEjJAo5qyui5Hb8iW7eGmpg7ILSnslVYdQPvys__zxP4qoraRoSsme6qQ0u54fA https://ritid.hi.is/index.php/ritid/article/view/150 https://www.degruyterbrill.com/document/doi/10.1515/soci-2024-0029/html

#18 Skriftarkennsla og nýtt skriftarefni - Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir

Námsvarpið fékk til sín Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur kennsluráðgjafa hjá Kópavogsbæ til þess að ræða skriftarkennslu og nýtt skriftarefni sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur gefið út. Ítarefni: https://skriftarvefur.mms.is/ https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/skrift_handbok/

#17 Heimalestur - Auður Soffíu Björgvinsdóttir

Námsvarpið fékk til sín Dr. Auði Soffíu Björgvinsdóttur til þess að ræða heimalestur en hún hélt fyrirlestur á Menntakviku fyrr í haust um niðurstöður rannsóknar um heimalestur.

#16 Þróun kennsluhátta til eflingar ritunarfærni nemenda - Ásdís Jóhannesdóttir

Ásdís Jóhannesdóttir kennari í Öldutúnsskóla kom til okkar og ræddi þróun kennsluhátta til eflingar ritunarfærni nemenda.   Hún hélt erindi um efnið á Menntakviku í október. Ítarefni: http://hdl.handle.net/1946/45566  https://hdl.handle.net/1946/49959

Þér gæti líka líkað...