#27 Starri í Hólabrekkuskóla - Lovísa Guðrún Ólafsdóttir og Sólveig Edda Ingvarsdóttir

· Menntun

Við fengum til okkar Lovísu Guðrúnu Ólafsdóttur skólastjóra Hólabrekkuskóla og Sólveigu Eddu Ingvarsdóttur deildarstjóra við sama skóla og doktorsnema til þess að ræða orðaforðaverkefnið Starra.
Lestrarkennsluaðferðin Starri var þróuð í gegnum samstsarf LEAD Academy Trust og Notttingham Trent Háskólans árið 2021. Höfundar aðferðarinnar, Aaron Jordan og Emma Vardy, sáu að í orðaforðakennslu í grunnskólum Bretlands vantaði nálgun til að flýta þróun orðaforðaþekkingu nemenda, og að slík nálgun myndi hafa jákvæð áhrif á lesskilning. Námsaðferðin gefur kennurum gagnreyndar kennsluaðferðir við orðaforðavinnu. Tilgangur hennar er að hjálpa öllum börnum að breikka og dýpka orðaforða sinn til þess að lesskilningur aukist. Haustið 2025 hófst samstarf höfunda við sérfræðinga frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Hólabrekkuskóla um innleiðingu og aðlögun efnisins fyrir íslenska nemendahópa.

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan

Úr hlaðvarpinu

Námsvarpið - Mál, læsi og líðan

Rannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan - Berglind Axelsdóttir

Allir þættir

Fleiri þættir af Námsvarpið - Mál, læsi og líðan