113. - Verður VG reist frá dauðum? Lifir Icelandair ETS af?
Rósa Björk Brynjólfsdóttir vill verða formaður VG en flokkurinn er í mikilli kreppu eftir að hafa dottið út af þingi og misst ríkisstyrki. Kosið verður um nýjan formann í flokknum um miðjan næsta mánuð.
Icelandair býr við mjög íþyngjandi umhverfisskattheimtu og ljóst að ef hennar nyti ekki við hefði fyrirtækið skilað umtalsverðum hagnaði á síðasta ári.
Rósa Björk mætir í Spursmál og ræðir fréttir vikunnar ásamt Eyþóri Arnalds, fyrrum borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þau ræða stríðið í Úkraínu, ESB-umsókn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og margt fleira af vettvangi stjórnmálanna.
Flugfélag í kreppu
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair ræðir stöðu flugfélagsins, ekki síst í ljósi hinnar miklu skattheimtu sem að mati margra skekkir samkeppnisstöðu íslensks flugrekstrar mjög gagnvart evrópskum og bandarískum flugfélögum.
Rangir hvatar í stærstu bótakerfum landsins
Í lok þáttar mætir geðlæknirinn og viðskiptafræðingurinn Oddur Ingimarsson og ræðir tvær afar athyglisverðar greinar sem hann hefur ritað í Morgunblaðið á síðustu tveimur vikum um örorkubætur og lífeyrisgreiðslur og hvernig samspil þeirra geta latt fólk til þess að koma aftur út á vinnumarkaðinn eftir að hafa misst starfsgetu sína um stundarsakir.
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í11. september 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #141. - Uppgjörið1. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
