#109. - Er ríkisstjórnin að missa stjórn á hagkerfinu?
Allt virðist stefna í mjög hraða kólnun hagkerfisins á sama tíma og verðbólga eykst hratt. Hætt er við að ríkisstjórnin missi stjórn á kerfinu við slíkar aðstæður og háir vextir verði viðvarandi.
Þessi staða verður til umræðu í Spursmálum í dag. Þar mæta til leiks Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi og hagfræðingur og Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi sem lengi hefur tjáð sig um stöðu efnahagsmála hér á landi.
Til þess að fara yfir fréttir vikunnar ætla þær að leiða saman hesta sína borgarfulltrúarnir Magnea Gná Jóhannsdóttir og Líf Magneudóttir. Þær sækjast báðar eftir endurkjöri í komandi kosningum og í flokkum þeirra beggja stefnir einnig í formannsskipti á allra næstu vikum.
Hver er líklegri til þess að verða næsti formaður Framsóknar, Lilja D. Alfreðsdóttir eða Ingibjörg Isaksen? Og hver mun taka við keflinu af Svandísi Svavarsdóttur sem æðstráðandi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs?
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í11. september 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #141. - Uppgjörið1. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
