#103. - Ársuppgjör Spursmála: Hver á veiðiheimildirnar?
Hvað hefur staðið upp úr á árinu 2025? Í íþróttum, tísku og stjórnmálum. Svörin við því fást í Spursmálum dagsins þar sem öflugir blaðamenn Morgunblaðsins stinga saman nefjum fyrir framan myndavélarnar í þessum síðasta þætti ársins.
Þar mæta til leiks Marta María Winkel, sem fer fyrir hinu geysivinsæla Smartlandi, Bjarni Helgason, aðstoðarfréttastjóri íþrótta á Morgunblaðinu og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður og stjórnmálaspekúlant.
Hispurslaus umræða
Þau skyggnast ekki aðeins yfir stærstu og áhugaverðustu fréttir ársins heldur leyfa sér einnig að velta vöngum yfir því hvað árið 2026 muni bera í skauti sér.
Létt, hispurslaus og upplýsandi umræða þar á ferð.
Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims. Hver á fiskinn í sjónum? Eða heimildirnar til þess að draga hann á land? Guðmundur hefur sterkar skoðanir á þessu og liggur ekki á þeim. Hann ræðir einnig umbúðalaust um nýjan makrílsamning en sitt sýnist hverjum um vinnubrögð stjórnvalda í aðdraganda undirritunar hans.
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í11. september 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #141. - Uppgjörið1. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
