#85. - Vendingar í njósnamáli og þinginu þjófstartað
Spursmál hefja nú göngu sína á mbl.is að nýju eftir stutt sumarleyfi. Í upphafi fyrsta þáttar verður upplýst um nýjar vendingar í njósnamáli PPP ehf. sem teygir sig djúpt inn í íslenskt stjórnkerfi.
Í fréttum vikunnar er rætt við þau Hjörvar Hafliðason eða dr. Football eins og hann er gjarnan nefndur og Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur, fréttakonu á Ríkissjónvarpinu.
Í síðari hluta þáttarins er rætt við þingflokksformenn þriggja stærstu flokkanna sem sæti eiga á Alþingi. Þau Guðmund Ara Sigurjónsson, frá Samfylkingu, Sigmar Guðmundsson, frá Viðreisn og Hildi Sverrisdóttur frá Sjálfstæðisflokki.
Spursmál verða á dagskrá alla föstudaga kl. 14 í vetur og þar verður farið vítt og breitt yfir sviðið og Ísland í brennidepli.
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í11. september 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #141. - Uppgjörið1. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
