#17. - Hvað tefur vaxtalækkanir?
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er aðalviðmælandi Stefáns Einars Stefánssonar í nýjasta þætti Spursmála.
Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti í vikunni um að staða stýrivaxta héldist óbreytt og yrði áfram í 9,25 prósentum. Ákvörðunin hefur valdið þó nokkru upphlaupi einkum í samhengi við nýundirritaða kjarasamninga sem ætlað var að hafa áhrif á lækkun og þróun verðbólgu.
Í þættinum verður krefjandi spurningum beint að seðlabankastjóra um horfurnar á efnahagsmarkaði hér á landi.
Yfirferð á stærstu fréttum vikunnar verður í góðum höndum þessa vikuna. Þær Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri flugfélagsins Play, og Þórhildur Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Brú Strategy, mæta í settið til að rýna helstu fréttir líðandi viku.
Samhliða störfum sínum halda þær Nadine og Þórhildur úti hlaðvarpsþáttunum Eftirmál sem notið hafa mikilla vinsælda.
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í11. september 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #141. - Uppgjörið1. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
