#1. Spursmál - Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Kristrún Frostadóttir
Umsjónarmaður Spursmála er blaðamaðurinn Stefán Einar Stefánsson sem mun stýra afdráttarlausri samfélagsumræðu og fá vikulega til sín valinkunna viðmælendur í settið til að kryfja umræðuna og fara yfir málefni líðandi stundar.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, og Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, sitja fyrir svörum í þessum fyrsta þætti. Auk þeirra ræðir Stefán Einar við Ragnhildi Sverrisdóttur, fyrrum fréttastjóra á Morgunblaðinu sem nú starfar hjá Landsvirkjun og Snorra Másson, ritstjóra Ritstjóra, um það sem var efst á baugi í líðandi viku.
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í11. september 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #141. - Uppgjörið1. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
