#122. - Mun ríkisstjórnin koma atkvæðagreiðslunni í gegn?
Meirihlutinn á Alþingi hefur sléttar þrjár vikur til að koma ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB í gegnum þingið. Takist það ekki 29. maí eða fyrr getur ekki orðið af henni í lok ágúst. Þessa dagana er hart tekist á um málið, ekki síst á vettvangi utanríkismálanefndar þingsins.
Pawel Bartoszek er formaður nefndarinnar en í henni situr einnig Diljá Mist Einarsdóttir. Þau eru gestir Spursmála að þessu sinni og ræða málið frá ýmsum hliðum. Ljóst er að stór gjá er á milli meirihluta og minnihluta í þinginu um málið.
Áður en þau mæta til leiks fara þau Andrés Magnússon og Andrea Sigurðardóttir yfir stöðuna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Mun kreditkortanotkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur hafa áhrif á fylgi Samfylkingarinnar og mun Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi standa af sér árásir Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra.
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í11. september 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #141. - Uppgjörið1. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
