#124. - Guðrún vs. Sigmundur og blikur á lofti
Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur náðu ekki saman um meirihluta í höfuðborginni, þrátt fyrir vonir margra þar um. Formenn flokkanna, þau Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gera upp sveitarstjórnarkosningarnar og fara yfir yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst.
Þá mætir til leiks Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka en hann ritaði grein í Morgunblaðið í morgun sem nefnist Maður mjólkar ekki dauða kú. Hann hefur verulegar áhyggjur af stöðu Icelandair sem hann segir mikilvægasta fyrirtæki landsins. Hann kom að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í Covid-faraldrinum og þekkir því vel til á vettvangi. Hvað er til ráða? Er hætt við því að Íslendingar missi úr höndunum þessa lífæð milli landsins og meginlandanna í austri og vestri?
Í lok þáttarins ræðir Stefán Einar við þau Önnu Laufeyju Stefánsdóttur hjá Stafrænni velferð og Svein Tryggvason, framkvæmdastjóra Tæknivara. Þau hafa áhyggjur af stöðu samfélagsmiðla og hvernig þeir virka á unga fólkið í landinu. Hvar liggur vandinn? Eru þessir sömu miðlar nú þegar búnir að gleypa foreldra barnanna?
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í11. september 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #141. - Uppgjörið1. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
