#125. - Áslaug kveður, ESB-sumarið hefst
Í Spursmálum vikunnar er farið yfir pólitíska jarðskjálfta síðustu daga, brotthvarf Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur úr stjórnmálum og það sem kann að bíða hennar handan þingsalarins. Þá hefst heit umræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, enda virðist íslenska sumarið ekki eiga að fara í sól, sund og pylsur heldur gjaldmiðlamál, fullveldi og skýrslur.
Hermann Nökkvi Gunnarsson og Hlédís Maren Guðmundsdóttir fara yfir fréttir vikunnar, þar á meðal stöðu Miðflokksins eftir kosningar, fánamál í Reykjavík, útlendingamál í Reykjanesbæ, Icelandair, Oculis og umræðuna um íslenska fánann. Þá ræðir Áslaug Arna ákvörðun sína og framtíðina, áður en Lilja Alfreðsdóttir og Dagbjört Hákonardóttir takast hressilega á um ESB, krónuna, EES-samninginn og stöðu Íslands í breyttum heimi.
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í11. september 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #141. - Uppgjörið1. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
