#127. - Myndi matvælaverð lækka eða hækka við ESB-aðild?
Ýmsum fullyrðingum hefur verið haldið á lofti um að matvælaverð muni lækka ef Ísland gengur í Evrópusambandið. Því hefur jafnvel verið haldið fram að það muni lækka um allt að fjórðung.
Hvað er satt og logið í því? Þeirri spurningu munu þær Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og stjórnarmaður í Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og stjórnarmaður í Evrópuhreyfingunni reyna að svara á vettvangi Spursmála í dag.Þá munu hagfræðingarnir Birta Karen Tryggvadóttir og Þórður Gunnarsson rýna í nýja fjármálaáætlun ríkisins. Birta Karen birti fyrr í vikunni grein þar sem hún gagnrýnir vinnubrögð fjármálaráðherra og Alþingis þar sem fjármálaáætlun til ársins 2031 var samþykkt án þess að tillit væri tekið til nýrrar hagspár Seðlabanka Íslands sem gerir ráð fyrir talsvert verri horfum á komandi árum og misserum en áður var gert.
Fleiri þættir af Spursmál
- #144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ2. október 2026
- #143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í11. september 2026
- #142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu4. september 2026
- #141. - Uppgjörið1. september 2026
- #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar28. ágúst 2026
- #139. - Gangi Ísland inn, þá verður ekki aftur snúið24. ágúst 2026
