S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki
Þessi þáttur fangar kjarnann í því sem Vörumerki snýst um: að sjá vandamál, fá hugmynd að lausn...og framkvæma hana.
Ásthildur Gunnlaugsdóttir var aðeins 26 ára þegar hún fékk hugmynd að lausn við vandamáli sem hún hafði sjálf glímt við í starfi sínu sem förðunarfræðingur. Úr þeirri hugmynd varð Mist & Co., íslenskt vörumerki sem gerir þrif á förðunarburstum einfaldari, fljótlegri og fallegri.
Í þættinum ræðum við meðal annars:
- Framleiðsluferlið og þær óvæntu áskoranir sem koma upp þegar hugmynd á að verða að alvöru vöru
- Umbúðirnar og hversu stóru hlutverk þær gegna í upplifuninni af vörumerkinu
- Hvernig kokteilskóli fjármagnaði fyrstu framleiðsluna
- Fyrsta fundinn með Hagkaup, þar sem Ásthildur mætti með frumgerð sem var, að hennar eigin sögn, „basically blað“
- Samfélagsmiðla, frumkvöðlalífið og uppbyggingu vörumerkis frá grunni, frá hugmynd og konsepti yfir í sölu og dreifingu.
- Spennandi hluti framundan hjá Mist & Co.
Mist & Co. er þó ekki eina fyrirtækið sem Ásthildur hefur komið á laggirnar. Hún og kærasti hennar stofnuðu einnig Kokteilskólann og Reykjavík Cocktails, samhliða því að eignast tvö börn á síðustu árum.
Þetta er þáttur fyrir alla sem vantar innblástur til að byrja, framkvæma og halda áfram, fullur af raunverulegum ráðum og innsýn í allt það sem gerist á bak við tjöldin þegar vörumerki verður til.
Og já… þú vilt líklega fara að þrífa förðunarburstana þína eftir þennan þátt. 🫣🦠
-
💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.
💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson
📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki
Fleiri þættir af Vörumerki
- S2E12 | Það sem virkaði fyrir 5 árum virkar ekki lengur3. september 2026
- S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“20. ágúst 2026
- S2E10 | Garðar & Lóa hjá GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim13. ágúst 2026
- S2E9 | Sylvía Briem - Villti hesturinn sem landaði Red Bull á Íslandi6. ágúst 2026
- S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá23. júlí 2026
- S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið9. júlí 2026
