Vörumerki

Margrét Björk Jónsdóttir

SamfélagiðFréttir

Hlaðvarp fyrir fólk með góðar hugmyndir og stóra drauma! Langar þig að stofna eigið fyrirtæki, styrkja þitt persónulega vörumerki eða gera eitthvað alveg nýtt?  Í Vörumerki leiða Margrét Björk og Arna Þorsteins hlustendur inn í heim vörumerkja, sköpunar og frumkvöðlastarfs. Þær ræða við fólk sem hefur byggt upp eða starfað fyrir sterk vörumerki, þá sem hafa tekið stórar ákvarðanir, gert mistök og lært af þeim. Inn á milli deila þær eigin reynslu og raunveruleikanum á bak við það að taka sénsinn þrátt fyrir að vera ekki með allt á hreinu. Byrja, og gera það svo vel!

S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“

S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“

20ágú

Fatahönnuðurinn, verslunareigandinn og hlaðvarpsstjórnandinn Andrea Magnúsdóttir, konan á bak við Andrea by Andrea, er gestur okkar í þessum þætti. Við förum yfir vegferðina frá fyrstu skrefum hennar í fatahönnun og eigin rekstri yfir í að byggja upp vörumerki sem er orðið nátengt hennar persónulega vörumerki. Við tölum um sköpunarkraftinn, frelsið sem hún þarf til að vinna, reksturinn á bak við fallega heiminn og hvað þarf til að skapa upplifun sem fær viðskiptavini til að koma aftur. Við ræðum líka þróunina í verslunum almennt, fast fashion, hönnunarstuld og minnkandi virðingu fyrir hönnun. Þá segir Andrea frá erfiðu tímabili í lífi sínu þar sem breytingaskeiðið hafði mikil áhrif á líðan hennar, sköpun og vinnu. Og að sjálfsögðu förum við í hraðaspurningar þar sem Andrea þarf meðal annars að velja á milli útlits og þæginda og þarf að svara hverjum hún myndi.... ríða, giftast eða drepa. Önnur umræðuefni þáttarins eru meðal annars: Vegferð Andreu í tísku, hönnun og eigin rekstri Munurinn á vörumerkinu Andrea og persónulega vörumerkinu hennar Verslun vs. netverslun og breytt kauphegðun viðskiptavina Heildarupplifun kúnnans og hvað fær fólk til að koma aftur Hvað flokkast raunverulega sem góð kaup — verð, gæði eða hversu mikið flíkin er notuð? Útlit vs. þægindi og sterkt auga Andreu fyrir fagurfræði Starfsfólkskúltúrinn og hugsunin á bak við góða þjónustu Fullkomnunarárátta, persónulegar áskoranir og lífið á bak við vörumerkið -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E10 | Garðar & Lóa hjá  GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim

S2E10 | Garðar & Lóa hjá GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim

13ágú

Vörurnar frá GoodGood eru fáanlegar í 31 landi og um 10.000 verslunum, þar á meðal hjá risum á borð við Walmart, Whole Foods, Kroger og Sprouts, og innan skamms bætist Target í hópinn. Færri vita þó kannski að þetta alþjóðlega vörumerki er alíslenskt. Garðar Stefánsson, forstjóri og meðstofnandi Good Good, og Lóa Fatou, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, eru gestir þáttarins og fara með okkur yfir ótrúlega vegferð vörumerkisins, sem hófst við lítið eldhúsborð í Hafnarfirði fyrir rúmum áratug. Í þættinum heyrir þú meðal annars um: Hvernig fyrsta Good Good sultan varð til úr umfram lager af sætuefni- og endaði sem metsölusulta á Amazon Hvernig „lítil“ verslunarkeðja reyndist vera 250 með verslanir, og varð stórt stökk inn á Bandaríkjamarkað Hvernig Good Good rataði í The Drew Barrymore Show – og hvað gerðist við söluna í kjölfarið. Mistökin, tollavesenið og stöðugu vandamálin sem fylgja því að byggja fyrirtæki á alþjóðlegum markaði. Hvernig teymið hugsar um vöruþróun, fókus og hvaða vörur eigi að halda áfram með. Hvernig Good Good ætlar sér að sækja enn lengra á bandaríska markaðinn, en þau eru nú þegar í topp tíu í sultum og númer þrjú í súkkulaðismjöri. Hvers vegna Nutella hefur í raun skapað tækifæri fyrir Good Good. Hvaða bragðtegundir þau myndu aldrei framleiða. Og hvers vegna lausnamiðað hugarfar skiptir öllu þegar „það er alltaf eitthvað vesen" Þetta er skemmtilegt, fróðlegt og hvetjandi spjall og sjaldgæft tækifæri til að skyggnast á bak við tjöldin hjá íslensku fyrirtæki sem á í viðskiptum við nokkrar stærstu verslunarkeðjur heims, og heyra hvað þarf í raun til að byggja vörumerki fyrir heimsmarkað. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E9 | Sylvía Briem - Villti hesturinn sem landaði Red Bull á Íslandi

S2E9 | Sylvía Briem - Villti hesturinn sem landaði Red Bull á Íslandi

6ágú

Athafnakonan Sylvía Briem Friðjónsdóttir er annar stofnenda Steindal ehf., sem flytur inn og markaðssetur vörumerki á borð við Töst, El Taco Truck og Red Bull á Íslandi. Sylvía hefur víðtæka reynslu af sölu, markaðssetningu og þjálfun. Hún starfaði um árabil hjá Dale Carnegie og hlaut þar alþjóðlega viðurkenningu sem besti þjálfari heims. Hún hélt auk þess úti geisivinsæla hlaðvarpinu Normið, ásamt Evu Mattadóttur um fimm ára skeið.  Í þættinum ræðum við hvernig Steindal varð til og hvernig fyrirtækið stækkaði gríðarlega á örfáum árum. Við förum meðal annars yfir um hvernig hugmyndin að Töst og hvernig þeim tókst að landa Red Bull-umboðinu á Íslandi í harðri samkeppni við fimm mun stærri fyrirtæki. Sylvía er einlæg og talar ekkert í kringum hlutina, hún talar opinskátt um ADHD, tilfinninguna að passa ekki inn í rammann sem fylgir hefðbundnu vinnuumhverfi og hvernig hún hefur skapað sér starfsferil sem hentar hennar styrkleikum. Sylvía lýsir sjálfri sér sem „spretthlaupara, ekki langhlaupara“ í vinnu og ræðir mikilvægi þess að þekkja eigin mörk, vinnulag og orku. Sylvía og Emil, eiginmaður hennar, eiga saman þrjá drengi og reka jafnframt fyrirtækið saman. Hún segir frá því hvernig þau ná að sameina hjónaband, fjölskyldulíf og fyrirtækjarekstur, hvaða áskoranir fylgja því að vinna náið með maka sínum og hvað þau hafa lært á leiðinni. Við ræðum einnig af hverju Sylvía og Eva ákváðu að setja Normið í pásu á toppnum eftir fimm ár og hvers vegna það getur stundum verið jafn mikilvægt að vita hvenær á að stoppa og hvenær á að halda áfram. Við hlustun færð þú meðal annars: Hagnýt dæmi um áhættur, fjármögnun og erfiðar ákvarðanir • Lærdóm af svikamáli sem kostaði milljónir • Nýtt sjónarhorn á kvíða, hræðslu og hvernig hægt er að vinna í gegnum hana • Hreinskilna umræðu um mistök, vörur sem gengu ekki upp og glansmynd frumkvöðlastarfsins • Hvatningu til að þora að vera byrjandi og læra hlutina á leiðinni • Innsýn í mikilvægi innsæis, þrjósku og þrautseigju í rekstri • Skilning á því hvernig hjónaband, fjölskyldulíf og fyrirtækjarekstur geta farið saman • Sjónarhorn konu sem hefur þurft að standa með sér í karllægum atvinnugeira • Hugmyndir um hvernig hægt er að byggja starfsferil í kringum eigin styrkleika og orku • Innblástur til að þekkja eigin mörk og vita hvenær tími er kominn til að stoppa Sylvía er hreinskilin, einlæg og full af orku og deilir bæði sigrum og áföllum af mikilli einlægni. Þetta er þáttur fyrir alla sem eru að byggja upp eigið fyrirtæki, hafa upplifað að passa ekki inn í hefðbundinn ramma, standa frammi fyrir mótlæti eða vilja heyra sanna sögu af frumkvöðlastarfi, ekki bara glansmyndina sem birtist á samfélagsmiðlum. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá

S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá

23júl

Þóra Hrund Guðbrandsdóttir er frumkvöðull, markþjálfi, markaðsfræðingur, gusumeistari og annar stofnenda Munum- vörumerkis sem hófst sem dagbók en hefur síðan þróast í mun stærri sýn og samfélag í kringum heilsu og vellíðan. Í þættinum ræðum við hvernig hugmyndin að Munum varð til og hvernig dagbókin seldist í allt að 12.000 eintökum á ári, þrátt fyrir vantrú margra á verkefninu í upphafi. Þóra segir einnig frá útrásinni sem þær fóru af stað með, hvers vegna þær ákváðu að hætta við hana og hvað sú ákvörðun kenndi þeim um vöxt, metnað og mikilvægi þess að vita hvenær tími er kominn til að breyta um stefnu. Þóra ræðir einnig hvernig hún velur verkefni út frá gildunum sínum, hvers vegna hún hefur sagt nei við öruggari leiðum og frá risastóru verkefni sem hún stefnir á að koma í framkvæmd. Við hlustun færð þú meðal annars: Innsýn í hvernig hugmynd getur orðið að raunverulegu vörumerki Hagnýt dæmi um fjármögnun, vöxt og erfiðar ákvarðanir Lærdóm af útrás sem var stöðvuð og stefnunni breytt Nýtt sjónarhorn á hugrekki, ótta og eftirsjá Skilning á því hvernig gildi geta hjálpað þér að taka skýrari ákvarðanir Innblástur til að láta vaða, jafnvel þótt óttinn sé enn til staðar Þóra er stútfull af orku og hugmyndum og svo mikilli ástríðu fyrir verkefnunum sínum að það er ekki hægt annað en að fyllast innblæstri og  hrífast með. Þetta er þáttur fyrir alla sem eru með hugmynd í maganum, standa frammi fyrir breytingum eða finna að þeir þurfa meira frelsi, meiri gleði og/ eða skýrari stefnu í lífið. --- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶 Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki

S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki

16júl

Þessi þáttur fangar kjarnann í því sem Vörumerki snýst um: að sjá vandamál, fá hugmynd að lausn...og framkvæma hana. Ásthildur Gunnlaugsdóttir var aðeins 26 ára þegar hún fékk hugmynd að lausn við vandamáli sem hún hafði sjálf glímt við í starfi sínu sem förðunarfræðingur. Úr þeirri hugmynd varð Mist & Co., íslenskt vörumerki sem gerir þrif á förðunarburstum einfaldari, fljótlegri og fallegri. Í þættinum ræðum við meðal annars: - Framleiðsluferlið og þær óvæntu áskoranir sem koma upp þegar hugmynd á að verða að alvöru vöru - Umbúðirnar og hversu stóru hlutverk þær gegna í upplifuninni af vörumerkinu - Hvernig kokteilskóli fjármagnaði fyrstu framleiðsluna - Fyrsta fundinn með Hagkaup, þar sem Ásthildur mætti með frumgerð sem var, að hennar eigin sögn, „basically blað“ - Samfélagsmiðla, frumkvöðlalífið og uppbyggingu vörumerkis frá grunni, frá hugmynd og konsepti yfir í sölu og dreifingu. - Spennandi hluti framundan hjá Mist & Co.  Mist & Co. er þó ekki eina fyrirtækið sem Ásthildur hefur komið á laggirnar. Hún og kærasti hennar stofnuðu einnig Kokteilskólann og Reykjavík Cocktails, samhliða því að eignast tvö börn á síðustu árum. Þetta er þáttur fyrir alla sem vantar innblástur til að byrja, framkvæma og halda áfram, fullur af raunverulegum ráðum og innsýn í allt það sem gerist á bak við tjöldin þegar vörumerki verður til. Og já… þú vilt líklega fara að þrífa förðunarburstana þína eftir þennan þátt. 🫣🦠 - 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið

S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið

9júl

Andreas Aðalsteinsson hjá auglýsingastofunni Sahara veit sannarlega eitt og annað um markaðssetningu, ekki síst þegar kemur að samfélagsmiðlum. Hann fer yfir það sem virkar í dag: hvað grípur athygli, hvað skapar tengingu og hvað hjálpar vörumerkjum að vaxa. Umræðuefni þáttarins eru meðal annars: Er „branding vs. sala“ röng spurning? Af hverju segir fylgjendatala ekki alla söguna? Hvaða íslensku áhrifavaldar standa sig best? Hvernig nær maður athygli fólks á fyrstu 3 sekúndunum? Hvað gerir content áhrifaríkt? Skiptir rétta tilfinningin meira máli en „súpa dagsins“? Andreas hjálpar okkur að setja hlutina í samhengi þegar kemur að skilaboðum, samfélagsmiðlum, auglýsingum og vexti. Þetta er þáttur fyrir frumkvöðla, fyrirtækjaeigendur, markaðsfólk og alla sem hafa einhvern tímann hugsað: „Við þurfum að vera virkari á samfélagsmiðlum… en hvað eigum við eiginlega að gera?“ -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E5 | Hjörtur (og Magnús) - Hvernig getur gervigreind einfaldað líf þitt?

S2E5 | Hjörtur (og Magnús) - Hvernig getur gervigreind einfaldað líf þitt?

2júl

Í þættinum fáum við Hjört Sigurðsson, gervigreindarsérfræðing og stofnanda Mynstra, til að útskýra AI á mannamáli. Tilgangurinn er að átta sig á hvernig venjulegt fólk, frumkvöðlar og fyrirtæki geta byrjað að nota gervigreind til að einfalda lífið og spara tíma.  Stjarna þáttarins er þó án efa Magnús, persónulegi gervigreindaraðstoðarmaðurinn hans Hjartar. Hann les og svarar tölvupóstum, fer yfir verkefnalista, gerir matarplan, tekur til á SharePoint….og skrifar ljóð í frítímanum. Við ræðum líka bréfaklemmu-heimsendaspána, hvort AI muni taka yfir störfin okkar, hvað fólk gerir ennþá betur en gervigreind og hvar mörkin liggja. Í þættinum lærir þú meðal annars: Hvernig þú getur byrjað að nota gervigreind án þess að mikla það fyrir þér. Hvernig persónulegur AI-aðstoðarmaður getur létt þér amstur hversdagsins. Hvaða forrit eru best fyrir fyrstu skrefin og hvernig þú talar við gervigreindina svo hún skilji þig. Hvernig AI getur nýst í vinnu, rekstri, heimilislífi og hugmyndavinnu. Þetta er þáttur fyrir alla sem hafa hugsað: „Ég veit að ég ætti að vera að nota gervigreind… en ég veit ekki hvar ég á að byrja.“ Gervigreindin þarf ekki að vera flókin, tæknileg eða yfirþyrmandi. Ekki mikla þetta fyrir þér. Bara byrja! -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E4 | Fyrstu skrefin að sterku vörumerki

S2E4 | Fyrstu skrefin að sterku vörumerki

25jún

Stútfullur þáttur af ráðum fyrir alla sem stefna á að stofna eigið fyrirtæki, hvort sem það er verslun, vörumerki, þjónusta, námskeið, vara..... eða bara hugmynd sem er farin að biðja um að verða að einhverju stærra. Arna og Margrét fara ítarlega yfir fyrstu skrefin við að byggja upp vörumerki, og það sem þarf að liggja fyrir áður en þú ferð í lógó, lén og Instagram. Við ræðum meðal annars: – hvað þú ert í raun að selja – hverjum þú ert að selja – hvað gerir þig öðruvísi – hvernig þú finnur markhópinn – af hverju sagan skiptir máli – hvernig þú heldur fókus – hvað þarf að passa áður en þú ferð af stað – og af hverju manneskjan á bakvið merkið skiptir máli .....Og loksins talar Margrét almennilega um vörumerkið sitt. Hún segir frá sögunni á bakvið nafnið, hugmyndafræðinni og því sem hún er í raun að reyna að byggja upp. Avelin Rae er ekki bara skartgripamerki, heldur vörumerki með skýra sýn á gæði, tímalausan stíl og hversdagslúxus. Arna kemur svo með sitt sterka sjónarhorn úr vörumerkjavinnu og rekstri, spyr réttu spurninganna, setur hlutina í samhengi og gerir þetta bæði praktískt og skýrt. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall+, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶 Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E3 | Sara í Júník - Andlit vörumerkis í 15 ár

S2E3 | Sara í Júník - Andlit vörumerkis í 15 ár

18jún

Sara Lind Pálsdóttir var aðeins 21 árs þegar hún opnaði tískuvöruverslunina Júník. Þrátt fyrir enga reynslu úr viðskiptalífinu, en með brennandi áhuga á tísku og fatnaði, sá hún gat á markaðnum og ákvað að stökkva í djúpu laugina. 15 árum síðar er Júník ein þekktasta fataverslun landsins og Sara sjálf löngu orðin órjúfanlegur hluti af vörumerkinu. Í þættinum fer Sara yfir ótrúlega sögu Júník: fyrstu árin, LA-ferðirnar, djammkjólana, útvarpsauglýsinguna sem allir þekkja, samfélagsmiðlana, áhrifavalda, sumartískuna og margt fleira. Við ræðum líka hvernig það hefur verið að vera andlit vörumerkis í 15 ár, vinnuna á bak við tjöldin, mörkin á milli vinnu og einkalífs, kjaftasögurnar, nafnlausar Facebook-færslur og hvernig hún ákvað að taka á þeim, auk alvarlegra veikinda sem settu lífið, vinnuna og forgangsröðunina í nýtt samhengi. Einlægt, skemmtilegt og djúsí spjall við ofurkonuna Söru í Júník. -- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

S2E2 | Davíð Örn Símonarson - Hinn fullkomni prófíll

S2E2 | Davíð Örn Símonarson - Hinn fullkomni prófíll

11jún

Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Smitten, er fyrsti viðmælandi okkar í seríu 2 af Vörumerki. Í þættinum ræðum við söguna á bak við skemmtilegasta dating-app í heimi, hvernig app verður að vörumerki, fjármögnun fyrir frumkvöðlaverkefni og bókina sem kveikti frumkvöðlaeldinn hjá Davíð. Davíð segir frá verkefnunum, tilraununum og lærdómunum á undan Smitten og af hverju það hefur aldrei komið til greina að gefast upp. Svo förum við auðvitað í stóru spurninguna: Hvernig er hinn fullkomni Smitten-prófíll? Hvaða myndir virka? Hverjar alls ekki? Hver eru rauðu flöggin? Og hvernig byrjar maður samtal án þess að segja bara „hæ“? Mögulega fórnar Margrét sér fyrir málsstaðinn... og skráir sig á Smitten í þættinum. Davíð hjálpar henni að velja réttu myndirnar og hikar ekki við að benda á þær sem eru ekki málið.  Þetta er þáttur fyrir alla sem vilja heyra skemmtilegt samtal um frumkvöðlastarf, vörumerki, lærdóm og fjármögnun, nú eða bara þá sem vilja fullkomna Smitten-prófílinn sinn. --- 💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche. 💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. 🔊 Sérstakar þakkir fyrir hljóð- og eftirvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson 📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki

Þér gæti líka líkað...