S2E12 | Það sem virkaði fyrir 5 árum virkar ekki lengur
Margrét og Arna setjast niður í lokaþætti seríu 2 og horfa bæði til baka og fram á við.
Markaðsheimurinn hefur breyst hratt- og aðferðir sem virkuðu fyrir nokkrum árum geta í dag jafnvel haft öfug áhrif. Við ræðum hvað er að breytast í markaðsmálum, hvernig gervigreind hefur áhrif á vörumerki og hvers vegna raunverulegt, persónulegt efni verður sífellt verðmætara.
Við förum líka yfir áhrifavalda og PR-pakka, hvernig fyrirtæki geta valið rétta miðla og hvers vegna það skiptir meira máli að skilja markhópinn og markmiðið en að reyna að vera alls staðar.
Að lokum færum við umræðuna yfir á okkar eigin verkefni, óttann við að byrja áður en allt er tilbúið og stærsta lærdóminn sem hefur fylgt okkur í gegnum alla seríuna: stundum þarftu einfaldlega að byrja- og sjá hvert það leiðir þig.
--
💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.
💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson
📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki
Fleiri þættir af Vörumerki
- S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“20. ágúst 2026
- S2E10 | Garðar & Lóa hjá GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim13. ágúst 2026
- S2E9 | Sylvía Briem - Villti hesturinn sem landaði Red Bull á Íslandi6. ágúst 2026
- S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá23. júlí 2026
- S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki16. júlí 2026
- S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið9. júlí 2026
