S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá
Þóra Hrund Guðbrandsdóttir er frumkvöðull, markþjálfi, markaðsfræðingur, gusumeistari og annar stofnenda Munum- vörumerkis sem hófst sem dagbók en hefur síðan þróast í mun stærri sýn og samfélag í kringum heilsu og vellíðan.
Í þættinum ræðum við hvernig hugmyndin að Munum varð til og hvernig dagbókin seldist í allt að 12.000 eintökum á ári, þrátt fyrir vantrú margra á verkefninu í upphafi. Þóra segir einnig frá útrásinni sem þær fóru af stað með, hvers vegna þær ákváðu að hætta við hana og hvað sú ákvörðun kenndi þeim um vöxt, metnað og mikilvægi þess að vita hvenær tími er kominn til að breyta um stefnu.
Þóra ræðir einnig hvernig hún velur verkefni út frá gildunum sínum, hvers vegna hún hefur sagt nei við öruggari leiðum og frá risastóru verkefni sem hún stefnir á að koma í framkvæmd.
Við hlustun færð þú meðal annars:
Innsýn í hvernig hugmynd getur orðið að raunverulegu vörumerki
Hagnýt dæmi um fjármögnun, vöxt og erfiðar ákvarðanir
Lærdóm af útrás sem var stöðvuð og stefnunni breytt
Nýtt sjónarhorn á hugrekki, ótta og eftirsjá
Skilning á því hvernig gildi geta hjálpað þér að taka skýrari ákvarðanir
Innblástur til að láta vaða, jafnvel þótt óttinn sé enn til staðar
Þóra er stútfull af orku og hugmyndum og svo mikilli ástríðu fyrir verkefnunum sínum að það er ekki hægt annað en að fyllast innblæstri og hrífast með. Þetta er þáttur fyrir alla sem eru með hugmynd í maganum, standa frammi fyrir breytingum eða finna að þeir þurfa meira frelsi, meiri gleði og/ eða skýrari stefnu í lífið.
---
💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.
💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
🎶 Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson
📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki
Fleiri þættir af Vörumerki
- S2E12 | Það sem virkaði fyrir 5 árum virkar ekki lengur3. september 2026
- S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“20. ágúst 2026
- S2E10 | Garðar & Lóa hjá GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim13. ágúst 2026
- S2E9 | Sylvía Briem - Villti hesturinn sem landaði Red Bull á Íslandi6. ágúst 2026
- S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki16. júlí 2026
- S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið9. júlí 2026
