S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“
Fatahönnuðurinn, verslunareigandinn og hlaðvarpsstjórnandinn Andrea Magnúsdóttir, konan á bak við Andrea by Andrea, er gestur okkar í þessum þætti.
Við förum yfir vegferðina frá fyrstu skrefum hennar í fatahönnun og eigin rekstri yfir í að byggja upp vörumerki sem er orðið nátengt hennar persónulega vörumerki. Við tölum um sköpunarkraftinn, frelsið sem hún þarf til að vinna, reksturinn á bak við fallega heiminn og hvað þarf til að skapa upplifun sem fær viðskiptavini til að koma aftur.
Við ræðum líka þróunina í verslunum almennt, fast fashion, hönnunarstuld og minnkandi virðingu fyrir hönnun. Þá segir Andrea frá erfiðu tímabili í lífi sínu þar sem breytingaskeiðið hafði mikil áhrif á líðan hennar, sköpun og vinnu.
Og að sjálfsögðu förum við í hraðaspurningar þar sem Andrea þarf meðal annars að velja á milli útlits og þæginda og þarf að svara hverjum hún myndi.... ríða, giftast eða drepa.
Önnur umræðuefni þáttarins eru meðal annars:
Vegferð Andreu í tísku, hönnun og eigin rekstri
Munurinn á vörumerkinu Andrea og persónulega vörumerkinu hennar
Verslun vs. netverslun og breytt kauphegðun viðskiptavina
Heildarupplifun kúnnans og hvað fær fólk til að koma aftur
Hvað flokkast raunverulega sem góð kaup — verð, gæði eða hversu mikið flíkin er notuð?
Útlit vs. þægindi og sterkt auga Andreu fyrir fagurfræði
Starfsfólkskúltúrinn og hugsunin á bak við góða þjónustu
Fullkomnunarárátta, persónulegar áskoranir og lífið á bak við vörumerkið
--
💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.
💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson
📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki
Fleiri þættir af Vörumerki
- S2E12 | Það sem virkaði fyrir 5 árum virkar ekki lengur3. september 2026
- S2E10 | Garðar & Lóa hjá GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim13. ágúst 2026
- S2E9 | Sylvía Briem - Villti hesturinn sem landaði Red Bull á Íslandi6. ágúst 2026
- S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá23. júlí 2026
- S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki16. júlí 2026
- S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið9. júlí 2026
