Fjölmiðill verður ekki til úr engu
Gímaldið er eins árs. Á þessum tíma hafa komið út 100 hlaðvarpsþættir, mörg hundruð greinar og bókarkaflar, og nú kemur fréttabréf alla virka morgna. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir líta yfir fyrsta árið og ræða hvaða skref Gímaldið tekur næst.
Í þættinum:
Erla rifjar upp mál starfsmanns Útlendingastofnunar sem birti trúnaðarupplýsingar um umsækjendur um vernd á Instagram, og fjallar um au pair-kerfið og frumvarp dómsmálaráðherra.
Helga segir frá umfjöllun sinni um matarverð og verðtryggð lán og hvað er fram undan í neytendamálum, meðal annars samkeppni í eldsneytissölu.
Aðalheiður ræðir krísu hefðbundinna stjórnmálaflokka á Íslandi og í Evrópu og hvað kom henni mest á óvart á árinu.
Eyrún ræðir um hægfréttir, mikilvægi áskrifta fyrir fjölmiðla og eitrað samband fjölmiðla og samfélagsmiðla.
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Fleiri þættir af Gímaldið
- Margrét Bjarnadóttir: Að hlæja í gegnum harminn21. nóvember 2026
- Heimilislausar konur og ofbeldið sem þær eru beittar20. nóvember 2026
- Flokkaflakk, fjárlög og „man flu“ á Alþingi19. nóvember 2026
- Formaður Afstöðu: Hræðsluáróður og stefnuleysi í fangelsismálum13. nóvember 2026
- Hver er að biðja um allar þessar verslanir og lengda afgreiðslutíma?12. nóvember 2026
- Sigurður Ingi: „Þetta fór fram hjá mér og fram hjá þinginu“11. nóvember 2026


