Þetta nútímalíf

RÚV Hlaðvörp

Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag. Umsjón og dagskrárgerð: Arnhildur Hálfdánar dóttir fyrir Rás 1 Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Verði þinn greiðsluvilji

Hvaða þýðingu hefur það fyrir neytendur og fyrirtæki að verð séu orðin sérsniðin? Hvers eiga unglingar og fólk í viðskiptaferðum að gjalda? Í þættinum skoðum við heim verðlagningar sem er að breytast hratt. Það er ekki lengur eitt verð, það eru mörg verð. Viðmælendur í þættinum: Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum. Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Rannsóknarseturs HR í markaðsfræði og neytendasálfræði. Þórarinn Stefánsson, framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum. *** Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Óreiðan sem gerir okkur brjáluð

Hvers vegna fær sumt fólk kikk út úr því að losa sig við mörg hundruð hluti á einu bretti á meðan aðrir upplifa djúpa vanlíðan við að henda einum hlut? Umsýslan með hlutunum sem við eigum er orðin stór partur af annarri og þriðju vaktinni, markaðsöflin eru búin að kveikja á perunni og það fjölgar í hópi skipuleggjara sem bjóðast til að hjálpa fólki við að ráða fram úr draslinu á heimili sínu. Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk um mannlegt eðli og það að losa sig við hluti. Viðmælendur í þættinum: Arnrún Árnadóttir skipuleggjari Markús Þórhallsson fréttamaður og sagnfræðingur Ragna Benedikta Garðarsdóttir prófessor í félagssálfræði Svala Fanney Snædahl áhrifavaldur og kennari Þórður Örn Arnarson doktorsnemi í sálfræði *** Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þegar búslóðin fuðrar upp

Hvers virði eru efnislegir hlutir? Afhjúpar það að missa alla búslóðina á einu bretti eitthvað um þýðinguna sem hlutir hafa fyrir okkur? Nær maður sér af slíku? Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk sem missti stóran hluta veraldlegra eigna sinna í stórbrunanum í Geymslum árið 2018 í þeim tilgangi að skilja betur mannlegt eðli og mikilvægi hlutanna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.