Ég veit alltaf hvar þú ert!
Sífellt fleiri fylgjast með staðsetningu fjölskyldumeðlima sinna í rauntíma í gegnum öpp á borð við Life 360. Börn fylgjast með foreldrum og foreldrar með börnum, fólk rekur ferðir náinna ættingja eða vina, jafnvel ókunnugs fólks. Hvaða áhrif hefur þessi þróun á okkur og samskipti okkar hvert við annað? Er vöktunin praktísk, jafnvel nauðsynleg í hættulegum heimi eða erum við að verða hálfgerðir eltihrellar?
Í þættinum prófar Arnhildur Hálfdánardóttir, þáttastjórnandi Þessa nútímalífs, appið og ræðir við Írisi Eik Ólafsdóttur, fjölskyldufræðing og réttarfélagsráðgjafa, þær Bergþóru Hildi Andradóttur og Svandísi Birgisdóttur, jafningjafræðara hjá Hinu húsinu og Helgu Sigríði Þórhallsdóttur, sviðsstjóra Alþjóða- og fræðslusviðs Persónuverndar.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fleiri þættir af Þetta nútímalíf
- Fólkið sem hætti með snjallsímanum18. nóvember 2026
- Föstudagar fortíðar: „Það er ágætt að lenda í kulnun fjórtán ára, þá lendir maður ekki aftur í því“21. október 2026
- Allt sem ég lærði á því að vinna fyrir algóriþmann7. október 2026
- Verði þinn greiðsluvilji23. september 2026
- Óreiðan sem gerir okkur brjáluð16. september 2026
- Þegar búslóðin fuðrar upp1. september 2026






