Verði þinn greiðsluvilji

Hvaða þýðingu hefur það fyrir neytendur og fyrirtæki að verð séu orðin sérsniðin?
Hvers eiga unglingar og fólk í viðskiptaferðum að gjalda?
Í þættinum skoðum við heim verðlagningar sem er að breytast hratt.
Það er ekki lengur eitt verð, það eru mörg verð.

Viðmælendur í þættinum:

Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum.
Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Rannsóknarseturs HR í markaðsfræði og neytendasálfræði.
Þórarinn Stefánsson, framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum.

***
Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þetta nútímalíf

Úr hlaðvarpinu

Þetta nútímalíf

RÚV Hlaðvörp

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta nútímalíf