Óreiðan sem gerir okkur brjáluð

Hvers vegna fær sumt fólk kikk út úr því að losa sig við mörg hundruð hluti á einu bretti á meðan aðrir upplifa djúpa vanlíðan við að henda einum hlut?

Umsýslan með hlutunum sem við eigum er orðin stór partur af annarri og þriðju vaktinni, markaðsöflin eru búin að kveikja á perunni og það fjölgar í hópi skipuleggjara sem bjóðast til að hjálpa fólki við að ráða fram úr draslinu á heimili sínu.

Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk um mannlegt eðli og það að losa sig við hluti.

Viðmælendur í þættinum:
Arnrún Árnadóttir skipuleggjari
Markús Þórhallsson fréttamaður og sagnfræðingur
Ragna Benedikta Garðarsdóttir prófessor í félagssálfræði
Svala Fanney Snædahl áhrifavaldur og kennari
Þórður Örn Arnarson doktorsnemi í sálfræði

***
Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Þetta nútímalíf

Úr hlaðvarpinu

Þetta nútímalíf

RÚV Hlaðvörp

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta nútímalíf