Föstudagar fortíðar: „Það er ágætt að lenda í kulnun fjórtán ára, þá lendir maður ekki aftur í því“
Krakkarnir sem mótmæltu aðgerðaleysi í loftslagsmálum á Austurvelli vikum, mánuðum, jafnvel árum saman eru orðnir fullorðnir. Hvaða augum líta þau þátttöku sína í Loftslagsverkfallinu nú? Sjá þau eftir einhverju? Í þættinum skoðum við loftslagsverkföllin á Íslandi í baksýnisspeglinum og heyrum sögur þeirra Idu Karolinu Harris og Egils Hermannssonar sem bæði tóku virkan þátt í umhverfishreyfingunni og loftslagsverkföllum á vegum Föstudaga fyrir framtíðina. Þetta er saga af hlýnun jarðar og kulnun mótmælahreyfingar.
Í þættinum er einnig rætt við Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.






