Allt sem ég lærði á því að vinna fyrir algóriþmann
Hvernig er að vinna í gigghagkerfinu, harkhagkerfinu, nú eða úllen dúllen doff hagkerfinu? Hagkerfi þar sem ófyrirsjáanlegur algóriþmi ræður því hver fær verkefni og hver ekki? Getur algóriþmi verið sanngjarn? Hvað getur talist vinna og hvað er bara hangs? Í þættinum kynnumst við veruleika Wolt-sendla á Íslandi, sérstaklega honum Mani sem rúntar með okkur um götur Reykjavíkur, segir okkur frá starfi sínu fyrir Wolt, áhyggjum og framtíðardraumum, já og því hvers vegna sendlarnir hanga svona oft í Fellsmúlanum. Við ræðum við forsvarsmann Wolt á Íslandi og í Noregi, nýkjörinn talsmann Wolt-sendla á Íslandi, gervigreindarsérfræðing og sendla sem fylktu liði á skrifstofur Wolt í Ármúla þegar verktakar hjá Wolt fengu langþráðan fund með yfirmönnum fyrirtækisins í lok september.
Viðmælendur í þættinum:
Christian Kamphaug
Kristinn Þórisson
Gersón
Gheorghe Mihai Cacaliceanu
Mani Shahidi
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Fleiri þættir af Þetta nútímalíf
- Fólkið sem hætti með snjallsímanum18. nóvember 2026
- Ég veit alltaf hvar þú ert!4. nóvember 2026
- Föstudagar fortíðar: „Það er ágætt að lenda í kulnun fjórtán ára, þá lendir maður ekki aftur í því“21. október 2026
- Verði þinn greiðsluvilji23. september 2026
- Óreiðan sem gerir okkur brjáluð16. september 2026
- Þegar búslóðin fuðrar upp1. september 2026






