09 | Baldvina Snælaugsdóttir – Sagan hennar mömmu

· Samfélagið, Fréttir

Í þessum þætti sest ég niður með mömmu minni, Baldvinu Snælaugsdóttur (Baddý). Upphaflega átti þátturinn að snúast um rúmlega 25 ára feril hennar í markaðsmálum, eftirminnilegar herferðir og lífið í bransanum.
En úr varð djúpt og persónulegt samtal um það þegar lífið fór á hvolf á einni nóttu, eftir að hún veiktist alvarlega í kjölfar heilaskurðaðgerðar fyrir nokkrum vikum.
Við ræðum örvæntinguna á spítalanum, bataferlið og hvernig hugsanir og baráttustraumar fólksins hennar skiluðu sér á ögurstundu þegar mest á reyndi.
Hún segir einnig frá því hvernig hún hafði fundið þetta á sér og gert ráðstafanir í vinnunni, meðal annars með því að stíga til hliðar og ráða eftirmann sinn sem markaðsstjóra Kringlunnar aðeins nokkrum dögum áður en hún fór í aðgerðina.
❤️ Mamma hefur alltaf verið mín fyrirmynd, en aldrei meira en einmitt núna. Þetta er sagan hennar, og sagan okkar beggja.
Þátturinn markar lok fyrstu seríu Vörumerkisins.
Í næstu seríu hefst nýr kafli þar sem þið fáið að fylgjast enn meira með mínu ferli við að byggja upp eigið vörumerki, Avelin Rae. 
----
✨ Þessi þáttur er í boði 👟 Skór.is  & Alfreð: Kynntu þér Hæfnileitina!
♡  Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói.
📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki

Vörumerki

Úr hlaðvarpinu

Vörumerki

Margrét Björk Jónsdóttir

Allir þættir

Fleiri þættir af Vörumerki