S2E5 | Hjörtur (og Magnús) - Hvernig getur gervigreind einfaldað líf þitt?
Í þættinum fáum við Hjört Sigurðsson, gervigreindarsérfræðing og stofnanda Mynstra, til að útskýra AI á mannamáli. Tilgangurinn er að átta sig á hvernig venjulegt fólk, frumkvöðlar og fyrirtæki geta byrjað að nota gervigreind til að einfalda lífið og spara tíma.
Stjarna þáttarins er þó án efa Magnús, persónulegi gervigreindaraðstoðarmaðurinn hans Hjartar. Hann les og svarar tölvupóstum, fer yfir verkefnalista, gerir matarplan, tekur til á SharePoint….og skrifar ljóð í frítímanum.
Við ræðum líka bréfaklemmu-heimsendaspána, hvort AI muni taka yfir störfin okkar, hvað fólk gerir ennþá betur en gervigreind og hvar mörkin liggja.
Í þættinum lærir þú meðal annars:
Hvernig þú getur byrjað að nota gervigreind án þess að mikla það fyrir þér.
Hvernig persónulegur AI-aðstoðarmaður getur létt þér amstur hversdagsins.
Hvaða forrit eru best fyrir fyrstu skrefin og hvernig þú talar við gervigreindina svo hún skilji þig.
Hvernig AI getur nýst í vinnu, rekstri, heimilislífi og hugmyndavinnu.
Þetta er þáttur fyrir alla sem hafa hugsað: „Ég veit að ég ætti að vera að nota gervigreind… en ég veit ekki hvar ég á að byrja.“
Gervigreindin þarf ekki að vera flókin, tæknileg eða yfirþyrmandi. Ekki mikla þetta fyrir þér. Bara byrja!
--
💛 Samstarfsaðilar VÖRUMERKIS eru Skór.is, Kristall Plús, Góa, Tekk, Miðbær Selfoss og Oche.
💡 Sería 2 af VÖRUMERKI er framleidd með styrk frá Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
🎶Sérstakar þakkir fyrir hljóð og myndvinnslu: Eyþór Úlfar Þórisson
📲 Fylgdu okkur á Instagram @vorumerki
Fleiri þættir af Vörumerki
- S2E12 | Það sem virkaði fyrir 5 árum virkar ekki lengur3. september 2026
- S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“20. ágúst 2026
- S2E10 | Garðar & Lóa hjá GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim13. ágúst 2026
- S2E9 | Sylvía Briem - Villti hesturinn sem landaði Red Bull á Íslandi6. ágúst 2026
- S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá23. júlí 2026
- S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki16. júlí 2026
